Skilmálar

BM veitingar ehf. er móðurfélag Njótum og sér um alla fjárhagslega og rekstrartengda umsýslu.

BM veitingar ehf.
Reikningsnúmer: 142-26-200080
Kt. 411222-0980
VSK númer: 134640

Reikningsviðskipti

Hafi verið samið um annan greiðslumáta en staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukorti sendir BM veitingar ehf. út reikning fyrir selda vöru. Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli BM veitingar ehf. og viðskiptavina. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags.

Ef reikningar eru ekki greiddir 10 dögum eftir eindaga fara kröfurnar sjálfkrafa til Inkasso til innheimtu með tilheyrandi kostnaði. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast til BM veitingar ehf. innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.

Verð

Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Verð á netinu geta breyst án fyrirvara.

Greiðslur

Greitt er fyrir vörur með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Teya eða með Netgíró.

Skila- og endurgreiðsluréttur

Enginn skila- og endurgreiðsluréttur er á vörunum. En komi upp galli á vörunum er hvert mál skoðað fyrir sig.

Trúnaður

Kaupanda er heitið fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum. Ef kemur upp ágreiningur milli kaupenda og seljanda vegna skilmála Njótum veisluþjónustu, verður málinu vísað til íslenskra dómstóla.

Karfan þín
Scroll to Top