Spurt og svarað
Hvenær þarf ég að panta?
Pantanir þurfa að berast fyrir miðnætti daginn áður. Ef þú ert að undirbúa stærri veislu er alltaf gott að gefa okkur aðeins meiri fyrirvara, þannig getum við undirbúið allt af kostgæfni og ró.
Get ég pantað og fengið afhent samdægurs?
Við vildum óska þess, en nei miður er það ekki hægt. Við þurfum alltaf smá tíma til að undirbúa veitingarnar af alúð og getum því ekki tekið við ekki við pöntunum samdægurs.
Á hvaða svæði bjóðið þið upp á heimsendingu?
Við sendum á öll póstnúmer á Reykjanesi og Höfuðborgarsvæðinu. Hér má finna nánari upplýsingar um heimsendingu.
Hvenær eru pantanir afhentar?
Við afhendum pantanir alla daga milli 11 og 17 og þú velur þann tíma sem hentar í pöntunarferlinu. Það er líka velkomið að sækja veitingarnar til okkar að Grænásbraut 920 í Reykjanesbæ.
Einnig býðst að sækja í Pikkoló stöð. Í boði eru stöðvar í Vatnsmýri, Breiddinni, á Hlemmi, í Hæðasmára og í Háaleiti. Þú færð QR kóða þegar pöntunin er komin í stöðina og getur sótt þegar þér hentar, þar sem stöðvarnar eru opnar allan sólarhringinn.
Hve mikið á ég að panta fyrir veislu?
Góð regla er að miða við um tíu til tólf bita á mann.
Er maturinn heitur eða kaldur?
Fingrafæðið ef afhent kalt og er borið fram þannig. Ef þú vilt hita það aðeins upp þá dugir nokkrar mínútur í ofni. Sushi er alltaf borið fram kalt.
Hvað fylgir með?
Með öllum sushi bitum fylgir sojasósa, piklað engifer, wasabi og prjónar. Aðrir bitar koma með sósu sem hentar vel við hverja tegund.
Hvernig er greitt fyrir pöntun?
Greiðslur fara fram í vefversluninni. Þú getur greitt með korti, Netgíró eða kröfu í heimabanka ef þú ert að kaupa fyrir fyrirtæki.
Er hægt að fá reikning með kennitölu fyrirtækis?
Já, þú setur kennitöluna í viðeigandi reit í greiðsluferlinu og reikningurinn kemur á netfangið sem þú gefur upp.